Sunday, June 26, 2011

roskilde

Er að fara á Hróaskeldu eftir 2 daga! WOOHOOO. Dey smá úr spenning.

Það sem ég er spenntust að sjá:

Lykke li
Oh Land
the Strokes
Arctic Monkeys
Portishead
Tv on the Radio
Little Dragon
Yelle
Iron Maiden
Kings of Leon

ooooog fleiri! Þetta getur ekki orðið leiðinlegt.

Mæli með að þið tékkið á þessari hljómsveit, er gjörsamlega ástfangin!


Fer svo til Svíþjóðar að versla í nokkra daga og enda ferðina á djammi í Köben!

Fór í verslunarpásu sem fór ekki betur en það að ég er búin að kaupa þetta seinustu daga:



Velvet.is og dúkkuhúsið.

-StarB

Wednesday, June 15, 2011

mine

Var að kaupa þessar á Black Milk. Víjjjj. Þetta eru leggings en ég mun nota þetta sem buxur, sama hvað hver segir. Get ekki beðið eftir að fá þær!


Fást hér!

-StarB

Tuesday, May 10, 2011

MIST

Ljósmyndari: Katrín Braga
Módel: Kolfinna Þóris og Carmen
Förðun: Halldóra Ársælsdóttir
Styling: Stella Björt








-StarB

Sunday, May 8, 2011

preview

Var að stílisera myndatöku í dag í fallega veðrinu. Katrín Braga tók myndir, Kolfinna Þóris og Carmen módeluðu og Halldóra gerði make-up. Mega spennt að sjá myndirnar.



Kolfinna
Halldóra
Ég og Carmen sætust
dúlla

-StarB

Tuesday, May 3, 2011

Páskafilma

Ég elska einnota myndavélar. Filmu myndir eru alltaf svo fallegar. Kaupi alltaf bónusmyndavélar á 200 kall. Verst hvað er dýrt að framkalla, en það má leyfa sér það stundum.

Nokkrar myndir síðan um páskana af fallegu gulu vélinni:


Bryndís og Una



-StarB

Monday, April 11, 2011

red leather pants

Mig vantar. Mig langar. Ég þrái. Ég VERÐ að eignast rauðar leðurbuxur!

Ég er búin að leita í marga mánuði af rauðum leðurbuxum sem kosta ekki 400.000 kall og leitin gengur lítið sem ekki neitt. Hef eytt ófáum klukkutímum á netinu að leyta og farið inná alltof margar klámsíður í leit minni, rautt leður er greinilega mjög vinsælt í klámheiminum.

Ég sá einar í H&M fyrir stuttu en þær voru í fyrsta lagi úr ekta leðri sem ég vill ekki, voru skrýtnar í sniðinu og voru dýrar. Sá líka á síðunni hjá Zöru og ég fílaði ekki litinn á þeim plús þær voru dýrar.

Nú bið ég ykkur elsku lesendur. Ef þið sjáið EINHVERSTAÐAR rauðar leðurbuxur eða leggings endilega látið mig vita ! xx

-StarB

Wednesday, March 30, 2011

30.03.11

Mögulega lélegasti bloggari ever - I KNOW.

RFF næstu helgi, get ekki beðið. Ætla tékka á ELITE keppninni, fara á nokkrar off venue sýningar , auðvitað á aðalsýningarnar í listasafninu, REYK VEEK eftirpartyið á faktory og POP UP VERZLUN á laugarveginum. Ætla að henda inn nokkrum dýrindis máltíðum og hvítvínsglösum með'essu. Hljómar einsog ágæt helgi.


MORANGE - Mac - nýji uppáhalds (Sigga vinsamlegast skilaðu honum áður en þú flytur til Finnlands!)
Ég er með þessar buxur á heilanum - All Saints ofc.
Hún er svo FLOTT - ég dey. LOVE IT.

-StarB